Þór í úrvalsdeild - Fjarðabyggð féll

Hilmar Árni Halldórsson, Ármann Pétur Ævarsson leikmenn Leiknis og Þórs vonast báðir eftir að komast ... stækka

Hilmar Árni Halldórsson, Ármann Pétur Ævarsson leikmenn Leiknis og Þórs vonast báðir eftir að komast í úrvalsdeild með liðum sínum að leikjum dagsins loknum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þór Akureyri tryggði sér í dag sæti í úrvalsdeild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð eftir stórsigur á Fjarðabyggð, 9:1, á Þórsvelli á Akureyri. Leiknir R, sem var í öðru sæti fyrir leiki dagsins, tapaði fyrir Fjölni og situr eftir með sárt ennið í deildinni. Fjarðabyggð féll í 2. deild en Grótta bjargaði sér en liðið gerði jafntefli, 1:1, við Njarðvík.

Knútur Jónsson jafnaði metin fyrir Gróttu á síðustu mínútu leiksins. Grótta hefði haldið sæti sínu í deildinni þrátt fyrir tap þar sem markatala liðsins var orðinn betri en Fjarðabyggðar eftir stórtap liðsins fyrir Þór. Njarðvík var fyrir nokkru fallið úr deildinni. 

Víkingur innsiglaði sigur sinn í deildinni með því að leggja HK, 3:1.

Pétur Georg Markan gerði út um allar vonir Leiknismanna á að fylgja Víkingum eftir upp í Pepsi-deildina. Hann skoraði þrennu í leiknum en Leiknismenn náði aðeins að skora eitt mark. Þeir sitja því eftir í deildinni. Leiknir fékk 43 stig eins og Þór en markatala liðsins er mun lakari en Þórsara svo munar 17 mörkum.

Fylgst var með leikjum dagsins á mbl.is.

Leikir dagsins eru:

Leiknir R. - Fjölnir 1:3 - leik lokið.
Helgi Pétur Jóhannsson  44. - Pétur Georg Markan 5., 44., 49. Rautt spjald: Gunnar Valur Gunnarsson,(Fjölni) 73., Brynjar Óli Guðmundsson (Leikni) 83.

Þór - Fjarðabyggð 9:1 - leik er lokið.
Ármann Pétur Ævarsson 6., 21., 67., Aleksandar Linta, víti, 9., Nenad Zivanovic 32., Jóhann Helgi Hannesson 39., Ottó Hólm Reynisson 64., Þorsteinn Ingason 71. - Aron Már Smárason, víti, 50. Rautt spjald: Daníel Þór Guðmundsson (Fjarðabyggð 9.), Andri Þór Magnússon (Fjarðabyggð) 80.

Víkingur - HK 3:1 - leik lokið.
Þorvaldur Sveinn Sveinsson 48., 67., Viktor Örn Guðmundsson, víti, 77. - Birgir Magnússon 42.

Njarðvík - Grótta 1:1 - leik lokið.
Andri Fannar Freysson 45.- Knútur Jónsson 90.

Þróttur - ÍR 1:1- leik lokið.
Mouamer Sadukovic 89., víti. - Tómas Agnarsson 54.

ÍA - KA 5:1- leik lokið.
Guðmundur Guðjónsson 34., Guðjón Heiðar Sveinsson 37., Gary Martin 47., 76., 90. - Janez Vrenko 41.

15:43 Rautt spjald! Brynjar Óli Guðmundsson, leikmaður Leiknis, brýtur illa af sér og fær umsvifalaust rautt spjald hjá Jóhannesi Valgeirssyni dómara. Sjö mínútur eftir af leiknum.

15:41 Rautt spjald ! Fjarðabyggð missar annan leikmann af velli með rautt spjald. Að þessu sinni var Andri Þór Magnússon. Tíu mínútur eftir af leiknum.

15:36. MARK Viktor Örn Guðmundsson skorar úr vítaspyrnu fyrir Víking á 77. mínútu. Staðan 3:1 fyrir Víking.

15:32.MARK! Ottó Hólm Reynisson skorar níunda mark Þórsara, staðan er 9:1 og 76 mínútur liðnar af leiknum.

15:31 Rautt spjald! Gunnar Valur Gunnarsson, varnarmaður Fjölnis, fær rautt spjald fyrir brot á Ólafi Hrannari Kristjánssyni rétt utan vítateigs Fjölnis. Það eru 17 mínútur eftir og Fjölnir er yfir gegn Leikni, 3:1.

15.28 MARK! Enn sígur á ógæfuhliðina hjá liði Fjarðabyggðar. Þorsteinn Ingason, fyrirliði, var að bæta við áttunda marki Þórs. Nú bendir flest til að Fjarðabyggð falli á markatölu. Staðan er 8:1 fyrir Þór.

15:27 MARK. Víkingar bæta við öðru marki sínu og það nánast endurtekning á fyrsta markinu. Viktor Örn Guðmundsson tók hornspyrnu og hægri bakvörður liðsins, Þorvaldur Sveinn Sveinsson, kom boltanum í markið eftir hornspyrnuna. Staðan 2:1, fyrir Víking.

15:25 MARK! Mörkunum heflur áfram að rigna í blíðunni á Þórsvelli á Akureyri. Ármann Pétur Ævarsson fullkomnaði þrennu sína í leiknum þegar hann þrumaði boltanum rétt utan teigs og þandi út netmöskvana á marki Fjarðabyggðar.

15:22 MARK! Ottó Hólm Reynisson skorar sjötta mark Þórs. Hann skallaði boltann í mark Fjarðabyggðar eftir fyrirgjöf.

15:05 MARK! Fjarðabyggð fær vítaspyrnu eftir að boltinn hrökk í hönd eins leikmanns Þórs. Aron Már Smárason skorar af öryggi úr vítaspyrnunni. Staðan er 5:1.

15:04 MARK! Heldur sígur á ógæfuhliðina hjá Leiknismönnum. Pétur Georg Markan var að skora þriðja mark Fjölnis. Staðan 3:1.

15:03 MARK! Víkingar jafna metin gegn HK,1:1. Þovaldur Sveinn Sveinsson skorar úr vítateignum eftir hornspyrnu Viktors Arnar Guðmundssonar.

14:44 MARK! Adam var ekki lengi í Paradís hjá Leiknismönnum. Strax eftir að þeir höfðu jafnað metin hófu Fjölnismenn leikinn á miðju og með snarpri sókn kemur Pétur Georg Markan þeim yfir á nýjan leik. 

14:44 MARK! Helgi Pétur Jóhannsson jafnar metin fyrir Leiknismenn á heimavelli við mikinn fögnuð heimamanna. 

14:42 MARK! Gegn gangi leiksins í Víkinni komast leikmenn HK yfir eftir snarpa sókn. Axel Birgisson komst upp að endamörkum og sendi boltann fyrir þar sem Birgir Magnússon kom á ferðinni og spyrnti knettinum rakleitt í mark Víking. Axel og Birgir eru báðir úr 2. flokki HK sem stillir upp sínu yngsta liði í meistaraflokki karla frá upphafi. Aldursforseti liðsins er Ögmundur  Ólafsson markvörður, 25 ára.

14:38 MARK! Þórsarar sýna leikmönnum Fjarðabyggðar enga miskunn. Jóhann Helgi Hannesson skorar þegar hann skalla boltann í markið eftir sendingu frá Gísla Páli Helgasyni eftir skyndisókn.

14:32 MARK! Enn bæta Þórsarar við mörkum gegn tíu leikmönnum Fjarðabyggðar. Að þessu sinni skoraði Nenad Zivanovic fjórða mark liðsins eftir sendingu frá Jóhanni Helga Hannessyni, en þeir höfðu spilað sig í gegnum vörn Fjarðabyggðar og Jóhann leikið á markvörðinn áður en hann rendi boltanum á Zivanovic.

14:24 Víkingar hafa sótt nær látlaust frá byrjun leiks við HK í Víkinni en ekki náð að skora ennþá. Viktor Örn Guðmundsson átt rétt áðan skalla í stöng HK marksins og af stönginni fór boltinn framhjá.

14:21 MARK! Ármann Pétur Ævarsson skorar þriðja mark Þórs. Hann fékk góða sendingu inn fyrir vörn Fjarðabyggðar frá Nenad Zivanovic og hamraði boltann í mark Fjarðabyggðar utarlega út vítateignum.

14:10. RAUTT SPJALD og MARK! Daníel Þór Guðmundsson, leikmaður Fjarðabyggðar er rekinn af leikvelli fyrir brot á sóknarmanni Þórs sem kominn var einn inn fyrir vörnina. Kristinn Jakobsson dómari var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu að auki. Aleksandar Linta skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni. Það blæs sannarlega ekki byrlega fyrir leikmönnum Fjarðabyggðar sem eiga á hættu að falla úr deildinni tapi þeir leiknum.

14:06 MARK! Ármann Pétur Ævarsson skorar fyrsta mark Þórs í veðurblíðunni á Þórsvelli á Akureyri. Ármann skallaði knöttinn í mark Fjarðabyggðar eftir hornspyrnu Atla Sigurjónssonar.

14:05 MARK! á Leiknisvelli.  Pétur Georg Markan kemur Fjölni yfir með góð skoti eftir vandræðagang í vörn Leiknismanna.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is