Mörk Gylfa Þórs með Hoffenheim í gær (myndband)

Gylfi Þór Sigurðsson skorar annað mark sitt gegn Hannover úr …
Gylfi Þór Sigurðsson skorar annað mark sitt gegn Hannover úr vítaspyrnu. Reuters

Gylfi Þór Sigurðsson hefur nú skorað 4 mörk í þeim sex leikjum sem hann hefur leikið með þýska liðinu Hoffenheim á tímabilinu. Gylfi skoraði 2 mörk í gær þegar liðið burstaði Hannover, 4:0, og lagði upp eitt og fær hann mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína.

Mörkin úr leiknum, smellið HÉR

Gylfi Þór er í liði vikunnar hjá netmiðlinum Goal.com og hann fékk hæstu einkunn allra leikmanna hjá Eurosport fyrir frammistöðu sína en hann fékk 7,7 í einkunn.

Gylfi er í liði vikunnar hjá knattspyrnutímaritinu Kicker en hann fékk 2 í einkunn og var hæstur í liði Hoffenheim ásamt sóknarmanninninum Demba Ba. Gylfi var valinn maður leiksins hjá Kicker sem gefur leikmönnum einkunnir frá bilinu 1-5 og er 1 hæsta einkunninn. Þá var einnig valinn maður leiksins hjá hinu útbreidda blaði Bild.

Næsti leikur Hoffenheim er á laugardaginn en þá sækja Gylfi Þór og félagar hans Hamburger SV heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert