Leikmenn slógust (myndband)

Allt vitlaust á vellinum.
Allt vitlaust á vellinum. Reuters

Það sauð heldur betur upp úr í viðureign Foggia og Gela í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu um liðna helgi. Gela var 2:1 yfir þegar um 5 mínútur voru eftir. Leikmaður Foggia varð fyrir meiðslum og sparkaði leikmaður Gela boltanum útaf svo hægt væri að hlúa að leikmanninum.

Leikmaður Foggia var hins vegar snöggur að framkvæma innkastið og upp úr því jafnaði Foggia metin og í kjölfarið varð allt vitlaust þar sem leikmenn slógust úti á vellinum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert