Markvörður skoraði sitt 100. mark (myndband)

Rogerio Ceni.
Rogerio Ceni. Reuters

Rogerio Ceni markvörður brasilíska knattspyrnuliðsins Sao Paulo og fyrrum landsliðsmarkvörður Brasilíu náði þeim áfanga í gær að skora sitt 100. mark á ferlinum.

Ceni, sem er 38 ára gamall, skoraði annað mark sinna manna í 2:1 sigri gegn Corinthians í gær með þrumuskoti úr aukaspyrnu. Þetta var 100. mark hans í 941 leik með Sao Paulo og af þessum 100 hefur hann skorað 43 úr vítaspyrnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert