Sócrates er látinn

Sócrates. stækka

Sócrates. Reuters

Sócrates, sem var fyrirliði brasilíska knattspyrnulandsliðsins á HM á Spáni 1982, lést á sjúkrahúsi í Sao Paulo í nótt en hann hafði lengi glímt við veikindi.

Sócrates, sem er  57 ára gamall, var menntaður læknir en starfaði við sjónvarp og sem blaðamaður eftir að knattspyrnuferlinum lauk. Hann var ofdrykkjumaður og hefur oft verið lagður inn á sjúkrahús með innvortis blæðingar á undanförnum árum sem má rekja til drykkjunnar.

Sócrates, sem þótti snjall miðjumaður, lék með landsliði Brasilíu frá 1979 til 1986 og skoraði 22 mörk í 60 leikjum með því. Hann lék meðal annars með brasilísku liðunum Santos og Flamenco og þá lék hann eitt tímabil með Fiorentina á Ítalíu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar


finnur.is