Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 18.1.2012
| 23:10
Börsungar fögnuðu sigri í Madrid
Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona fögnuðu sætum sigri gegn erkifjendum sínum í Real Madrid, 2:1, þegar liðin áttust við í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Santiago Bernabéu vellinum í Madrid.
Cristiano Ronaldo kom Real Madrid yfir eftir 14 mínútna leik en Carles Puyol jafnaði metin fyrir Börsunga með skallamarki í byrjun seinni hálfleiks. Það var síðan franski bakvörðurinn Eric Abidal sem skoraði sigurmark leiksins á 77. mínútu.
Liðin mætast aftur á Camp Nou í Barcelona næsta miðvikudagskvöld, 25. janúar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






