AZ Alkmaar sló Ajax út úr bikarnum
AZ Alkmaar hafði betur gegn Ajax á útivelli, 3:2, í hollensku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag og er AZ Alkmaar þar með komið áfram í átta liða úrslit keppninnar.
Þetta var endurtekinn leikur liðanna en fyrri leikurinn var flautaður af í fyrri hálfleik í kjölfar þess að einn stuðningsmaður Ajax hljóp inn á völlinn og reyndi að ráðast á markvörð AZ Alkmaar. Hann brást illur við, náði að koma manninum niður í grasið og sparkaði þar í hann. Dómari leiksins vísaði markverðinum út af og varð þá allt vitlaust í herbúðum AZ Alkmaar. Þjálfari liðsins dró leikmenn af velli og síðar ákvað hollenska knattspyrnusambandið að láta leikinn fara fram að nýju.
Aðeins börn 12 ára og yngri fengu að vera á áhorfendapöllunum og þau urðu vitni að hörkuleik þar sem AZ Alkmaar fagnaði sigri. Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á bekknum hjá AZ Alkmaar en Kolbeinn Sigþórsson lék ekki með Ajax vegna meiðsla.






