Fram lagði Íslandsmeistarana

Steven Lennon kom Frömurum á bragðið. stækka

Steven Lennon kom Frömurum á bragðið. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fram bar sigurorð af Íslands- og bikarmeisturum KR, 2:1, þegar liðin áttust við í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld. Framarar hafa þar með unnið báða leiki sína en þetta var fyrsti leikur KR-inga á mótinu.

Framarar fengu óskabyrjun þegar Steven Lennon skoraði eftir aðeins tveggja mínútna leik og Jón Gunnar Eysteinsson bætti öðru marki fyrir Framara á 36. mínútu. Haukur Heiðar Hauksson, sem kom til KR frá KA í vetur, minnkaði muninn fyrir Íslandsmeistaranna á 46. mínútu og þar við sat.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is