Pepe í bann hjá Real Madrid

Pepe í leiknum gegn Barcelona. stækka

Pepe í leiknum gegn Barcelona. Reuters

Real Madrid hefur ákveðið að setja portúgalska varnarmanninn Pepe í tveggja vikna bann að því er fram kemur í spænska blaðinu Marca í dag. Pepe hefur sætt mikilli gagnrýni eftir leik Real Madrid og Barcelona í fyrrakvöld en hann gerði sig sekan um fólskulegt brot þegar hann traðkaði á hendi Lionels Messis.

Pepe, sem oft hefur farið yfir strikið, lét hafa eftir sér í gærkvöldi að þetta hefði verið óviljaverk og hann bað Messi afsökunar en forráðamenn Real Madrid virðast nú hafa gefist upp á háttalagi Portúgalans og ætla að gefa honum „frí“ næstu tvær vikurnar.

Pepe kemur þar með til með að missa af leikjum Real Madrid í deildinni gegn Bilbao og Zaragoza og seinni leiknum á móti Barcelona í bikarnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is