Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 21.1.2012
| 17:00
| Uppfært
22.1.2012
20:03
Kári skoraði í jafntefli við meistarana
Kári Árnason skoraði fyrir Aberdeen þegar liðið náði óvænt jafntefli gegn meisturum Rangers í Glasgow í dag, 1:1, í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Markið skoraði Kári með laglegum hætti eftir skyndisókn á 63. mínútu en Maurice Edu jafnaði metin skömmu síðar.
Aberdeen er nú í 8. sæti með 26 stig eftir 24 leiki en Rangers er í næstefsta sæti með 55 stig, fjórum stigum á eftir grönnunum í Celtic.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






