Messi með þrennu í Málaga
Real Madrid og Barcelona unnu samskonar sigra, 4:1, á andstæðingum sínum í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu í kvöld – og þar með heldur Real sínum hlut, fimm stiga forskot í einvígi liðanna um meistaratitilinn.
Lionel Messi skoraði þrennu fyrir Barcelona þegar Katalóníuliðið sótti Málaga heim.
Barcelona hafði aðeins unnið einn af fjórum síðustu útileikjum sínum og Messi einungis
náð að skora einu sinni á útivelli í deildinni í vetur. En honum héldu engin bönd að þessu
sinni og eitt markanna gerði hann meira að segja með skalla, sem gerist ekki oft.
Real Madrid svaraði því á sama hátt þegar Baskarnir í Athletic Bilbao komu í heimsókn á Santiago Bernabéu síðar í kvöld. Fernando Llorente kom þó Athletic yfir en Marcelo jafnaði, Cristiano Ronaldo skoraði úr tveimur vítaspyrnum og José Callejon innsiglaði sigurinn, 4:1.
Einvígi Ronaldos og Messis heldur líka áfram. Messi fór uppfyrir Portúgalann um skeið með
þrennunni og er kominn með 22 mörk í vetur. Ronaldo svaraði með sínum tveimur mörkum
og er markahæstur á ný með 23 mörk.






