Með tilboð frá NY Red Bulls

Guðlaugur Victor Pálsson í leik með 21-árs landsliði Íslands. stækka

Guðlaugur Victor Pálsson í leik með 21-árs landsliði Íslands. mbl.is

Góðar líkur eru á að knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson verði fyrstur Íslendinga til að leika í bandarísku MLS-deildinni. Guðlaugur, sem rifti samningi sínum við skoska félagið Hibernian á dögunum, á í viðræðum við New York Red Bulls sem hefur boðið honum samning til tveggja ára með möguleika á framlengingu um tvö ár.

„Þetta kom þannig til að gamli þjálfarinn minn hjá AGF er núna orðinn yfirmaður unglingastarfsins hjá Red Bull. Ég er búinn að vera í góðu sambandi við hann og þegar þetta varð ljóst með Hibernian þá talaði hann við yfirmann íþróttamála hjá New York Red Bulls, Erik Solér. Solér er norskur og ég er því staddur í Noregi þar sem við erum í viðræðum,“ sagði Guðlaugur Victor í gær, nýkominn af árangursríkum fundi með Solér.

Henry og Marquéz í liðinu

Hjá bandaríska liðinu hafa margar frægar kempur leikið, á borð við Lothar Matthäus og Youri Djorkaeff, og nú eru Thierry Henry og Mexíkóinn Rafael Marquéz á mála hjá því. Henry er þó á láni hjá Arsenal sem stendur en leiktíðin í MLS hefst í mars. Victori, sem er miðjumaður og varnarmaður, líst vel á hugsanlega samherja sína.

„Það væri frábært að leika við hlið Marquéz en það er ekkert samkomulag í höfn. Þessi deild er alltaf að verða betri og þarna eru góðir leikmenn. Vonandi gengur þetta upp því ég er mjög spenntur fyrir þessu,“ sagði Victor. sindris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is