Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 25.1.2012
| 22:55
| Uppfært
26.1.2012
16:11
Barcelona sló Real Madrid út
Barcelona sló erkifjendur sína í Real Madrid úr leik í átta liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld en liðin áttust við í bráðfjörugum leik á Camp Nou í Barcelona.
Liðin skildu jöfn, 2:2, en Barcelona hafði betur í fyrri leiknum og vann einvígið samtals 4:3. Börsungar komust í 2:0 í fyrri hálfleik með mörkum frá Alves og Pedro en Real Madrid jafnaði metin um miðjan seinni hálfleik með mörkum frá Ronaldo og Benzema. Nær komust Madridingar ekki og undir lokin var Sergio Ramos varnarmanni liðsins vikið af velli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






