Davíð og Öster byrja vel
Davíð Þór Viðarsson skoraði mark í fyrsta æfingaleik sænska knattspyrnuliðsins Öster á undirbúningstímabilinu, þegar það vann sætan sigur á nágrönnunum í Kalmar, 3:2, frammi fyrir um 1.200 áhorfendum í Tipshallen í gærkvöld.
Davíð skoraði annað mark Öster með skalla eftir hornspyrnu um miðjan síðari hálfleik en hann er að hefja sitt þriðja keppnistímabil með liðinu. Hann hefur verið í stóru hlutverki á miðjunni hjá Öster undanfarin tvö ár, spilað 56 af 60 deildaleikjum liðsins og skorað fjögur mörk.
Öster hafnaði í fjórða sæti B-deildarinnar í fyrra, þremur stigum frá því að komast í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Kalmar hafnaði í 8. sæti af 16 liðum í úrvalsdeildinni.
Öster spilar fyrsta leik sinn í B-deildinni á þessu ári 8. apríl en keppni í úrvalsdeildinni sænsku hefst 31. mars.






