Guðlaugur að ganga í raðir New York Red Bulls

Guðlaugur Victor fagnar hér marki félaga síns í leik með Hibernian. stækka

Guðlaugur Victor fagnar hér marki félaga síns í leik með Hibernian. hibernianfc.co.uk

Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er við það að ganga í raðir bandaríska atvinnumannaliðsins New York Red Bulls sem leikur í MLS-deildinni. Guðlaugur staðfesti í samtali við vefinn fótbolti.net að hann væri á leið til félagsins en sem kunnugt er hætti Guðlaugur hjá skoska liðinu Hibernian fyrr í þessum mánuði.

Guðlaugur heldur til New York á morgun þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og standist hann þá skoðun skrifar hann undir tveggja ára samning.

Hann verður þar með fyrsti Íslendingurinn til að spila í MLS-deildinni en meðal þeirra sem eru á mála hjá New York Red Bulls eru Frakkinn Thierry Henry, sem nú er í láni hjá Arsenal, og Mexíkóinn Rafael Marquez, fyrrverandi leikmaður Barcelona.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is