Kári hafnaði tilboði Aberdeen

Kári Árnason. stækka

Kári Árnason. www.afc.co.uk

Kári Árnason leikur ekki áfram með Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu að öllu óbreyttu en David Winnie, fyrrverandi leikmaður KR, sem er titlaður lögfræðingur Kára, staðfesti það við BBC í dag.

„Við erum mjög vonsviknir yfir því að hafa ekki náð saman,“ sagði Winnie við BBC.

Talsmaður Aberdeen staðfestir líka gang mála: „Við gerðum Kára sérlega gott tilboð en leikmaðurinn telur sjálfur að hann geti fengið betri samning annars staðar. En hann er lykilmaður hjá okkur út þetta tímabil,  bæði í úrvalsdeildinni þar sem við ætlum að klífa töfluna, og í bikarnum þar sem við ætlum okkur langt,“ sagði talsmaðurinn.

Kári kom til Aberdeen frá Plymouth síðasta sumar og hefur verið í stóru hlutverki í liðinu. Hann skoraði mark Aberdeen gegn Rangers í úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is