Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 26.1.2012
| 14:50
Iniesta frá keppni næstu vikurnar
Andrés Iniesta, miðjumaðurinn frábæri í liði Barcelona og spænska landsliðsins í knattspyrnu, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla.
Iniesta meiddist á fæti í fyrri hálfleik í viðureign Barcelona og Real Madrid í gær þegar liðin skildu jöfn, 2:2, í síðari leik liðanna í spænsku bikarkeppninni. Þau úrslit nægðu Börsungum til að fara áfram í undanúrslitin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






