„Ég er mjög spenntur“
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu og hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni,“ sagði knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson við Morgunblaðið í gærkvöld. Hann var þá nýlentur í New York en í dag skrifar hann undir tveggja ára samning við bandaríska atvinnumannaliðið New York Red Bulls, sem spilar í MLS-deildinni.
„Ég fer í æfingaferð með liðinu til Mexíkó á mánudaginn þar sem ég tækifæri til að sýna mig og sanna en síðan byrjar deildin í mars,“ sagði Guðlaugur.
Spurður hvort það hafi ekki komið honum á óvart þegar bandaríska liðið setti sig í samband við hann sagði Guðlaugur: „Já og nei. Gamli þjálfarinn minn hjá AGF í Danmörku er að vinna fyrir félagið og eftir að ég hætti hjá Hibernian kom þetta upp á borðið. Mér fannst þetta strax mjög spennandi,“ sagði Guðlaugur, sem verður fyrsti Íslendingurinn til þess að spila í MLS-deildinni. Með liðinu leika til að mynda Frakkinn Thierry Henry og Mexíkóinn Rafael Marques, sem lék áður með Barcelona. gummih@mbl.is






