Hjörtur tryggði Fylki sigur á Val

Jóhann Þórhallsson skoraði eitt af mörkum Fylkis. stækka

Jóhann Þórhallsson skoraði eitt af mörkum Fylkis. Eggert Jóhannesson

Fylkir lagði Val, 3:2, í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í kvöld. Hjörtur Hermannsson, miðvörðurinn ungi og efnilegi,tryggði Fylkismönnum sigurinn með marki fimm mínútum fyrir leikslok.

Hjörtur skoraði tvö af mörkum Árbæjarliðsins og Jóhann Þórhallsson skoraði eitt. Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk Valsmanna og kom seinna mark hans úr vítaspyrnu.

Daði Bergsson kom Þrótti yfir á móti Fjölni á 10. mínútu en í byrjun seinni hálfleiks jafnaði Haukur Lárusson metin og þar við sat.

Fylkir er í efsta sæti riðilsins með 4 stig, Fjölnir og Þróttur hafa 2 og Valur er með 1 stig en öll liðin hafa spilað tvo leiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is