Arna-Björnar vill fá Hólmfríði

Hólmfríður Magnúsdóttir í leik með landsliði Íslands. stækka

Hólmfríður Magnúsdóttir í leik með landsliði Íslands. mbl.is/Ómar

Norska knattspyrnufélagið Arna-Björnar vill fá Hólmfríði Magnúsdóttur, landsliðskonu, til liðs við sig seinnipartinn á þessu ári, eða eftir að keppni í bandarísku atvinnudeildinni lýkur síðsumars.

Hólmfríður, sem býr sig um þessar mundir undir sitt þriðja tímabil með Philadelphia Independence, fer til æfinga hjá norska liðinu í næstu viku og dvelur þar í fjóra daga.

Arna-Björnar er frá úthverfi í Bergen og hafnaði í fjórða sæti norsku úrvalsdeildinnar á síðasta keppnistímabili, fimm stigum á eftir meistaraliðinu Röa. Liðið hefur verið á sömu slóðum og endað í fjórða til fimmta sætinu samfellt undanfarin fimm ár.

„Norska liðið hefur verið í sambandi við mig undanfarin ár og ég ákvað að fara og skoða aðstæður þar. Ég get farið þangað, annaðhvort fyrir 1. september, eða strax og keppninni hér í Bandaríkjunum lýkur, sem gæti verið snemma í ágúst. Ég hef líka áhuga á að fara til Svíþjóðar og veit af áhuga hjá nokkrum liðum þar en ég skoða það seinna," sagði Hólmfríður við mbl.is í dag.

Hún lék með Kristianstad í Svíþjóð tímabilið 2009 en síðan með Philadelphia undanfarin tvö ár. Liðið hefur leikið til úrslita um bandaríska meistaratitilinn bæði árin. Hólmfríður fór reyndar til Vals áður en úrslitakeppnin hófst síðasta sumar og lék með Hlíðarendaliðinu út tímabilið.

Keppnistímabilið í Bandaríkjunum hefst í mars og lýkur í ágúst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar


finnur.is