Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 28.1.2012
| 22:55
| Uppfært
29.1.2012
17:20
Barcelona tapaði dýrmætum stigum
Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona töpuðu tveimur dýrmætum stigum í toppbaráttu spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Börsungar urðu að sætta sig við markalaust jafntefli á móti Villareal og eru sjö stigum á eftir Real Madrid sem fyrr í kvöld hafði betur á móti Zaragoza, 3:1.
Barcelona fékk nokkur góð færi til að gera út um leikinn en Lopez, markvörður Villareal, reyndist þeim erfiður og lokatölur á El Madrical-vellinum, markalaust jafntefli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






