Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 29.1.2012
| 22:31
Andri skoraði fyrir Alta
Skagamaðurinn Andri Júlíusson er þessa dagana til skoðunar hjá norska B-deildarliðinu Alta. Hann lék með liðinu æfingaleik á móti Hammerfest í gær þar sem Alta vann, 5:0. Andri lék síðustu 20 mínúturnar og skoraði eitt mark á þeim tíma sem hann spilaði.
Andri, sem uppalinn hjá ÍA, lék með Fram á síðustu leiktíð og kom hann við sögu í 13 leikjum liðsins í Pepsi-deildinni. Hann er samningsbundinn Safamýrarliðinu út þetta ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






