Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 29.1.2012
| 20:10
| Uppfært
20:25
Kjartan Henry með tvö í sigri KR
Íslands- og bikarmeistarar KR í knattspyrnu lögðu Leiknismenn, 6:3, á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í Egilshöll í dag.
Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö af mörkum KR-inga og þeir Óskar Örn Hauksson, Dofri Snorrason, Aron Bjarki Jósepsson og Óli Pétur Friðjónsson gerðu sitt markið hver. Ólafur Hrannar Kristjánsson skoraði tvö af mörkum Leiknismanna og Kjartan Andri Baldvinsson skoraði eitt.
Þetta var fyrsti sigur KR-inga í riðlinum en þeir hafa 4 stig eftir þrjá leiki. Leiknir er með 6 stig eftir þrjá leiki en Framarar eru með fullt hús stiga eða 9 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






