Kristinn og Guðjón skoruðu fyrir Halmstad

Kristinn Steindórsson byrjar vel með Halmstad. stækka

Kristinn Steindórsson byrjar vel með Halmstad. mbl.is/Golli

Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson skoruðu báðir í sínum fyrsta æfingaleik með sænska knattspyrnuliðinu Halmstad þegar það sótti danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland heim í gær, laugardag.

Halmstad, sem féll úr sænsku úrvalsdeildinni í haust, lenti 3:0 undir eftir aðeins 12 mínútur í Danmörku en svaraði fljótt fyrir sig þegar Guðjón skoraði úr vítaspyrnu. Kristinn skoraði síðan fallegt mark af 20 metra færi þegar 20 mínútur voru eftir og lokatölur urðu 3:2 fyrir Nordsjælland.

Guðjón kom til Halmstad frá KR í vetur og Kristinn frá Breiðabliki. Jónas Guðni Sævarsson leikur einnig með Halmstad og hann spilaði allan leikinn en Guðjóni og Kristni var báðum skipt af velli á lokamínútunum.

Guðjón Baldvinsson tók vítaspyrnu strax í fyrsta leik og skoraði.

Guðjón Baldvinsson tók vítaspyrnu strax í fyrsta leik og skoraði. mbl.is/Goli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is