Sambía og Miðbaugs-Gínea í 8 liða úrslit

Leikmenn Sambíu fagna marki sínu gegn Miðbaugs-Gíneu. stækka

Leikmenn Sambíu fagna marki sínu gegn Miðbaugs-Gíneu. Reuters

Keppni í A-riðli á Afríkumótinu í knattspyrnu karla er lokið og er ljóst að Sambía og Miðbaugs-Gínea, sem leikur á heimavelli, eru komin áfram í 8 liða úrslitin. Þessi lið mættust í dag og tryggði Sambía sér efsta sætið í riðlinum með 1:0 sigri.

Chris Katongo skoraði markið sem skildi liðin að eftir rúman klukkutíma leik. Niðurlæging Senegals var svo fullkomnuð þegar liðið tapaði fyrir Líbíu í dag, 2:1. Senegal sem talið var eiga góða möguleika á mótinu endaði án stiga í A-riðlinum. Líbía sat einnig eftir með sárt ennið eftir að hafa aðeins fengið 4 stig.

Á morgun ræðst það svo hvaða liðum Sambía og Miðbaugs-Gínea mæta þegar lokaumferðin í B-riðli er leikin. Þar hafa Fílabeinsströndin og Angóla þegar tryggt sæti sitt í 8 liða úrslitum. Þau mætast hinsvegar á morgun og nægir Fílabeinsströndinni jafntefli til að tryggja sér efsta sætið. Þá myndi Miðbaugs-Gínea verða mótherji þess en annars Sambía.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is