Crespo leikur undir stjórn Teits
Hernan Crespo fagnar marki í búningi Inter Mílanó. Reuters
Argentínski knattspyrnumaðurinn Hernán Crespo, fyrrverandi leikmaður m.a. Chelsea, AC Milan og Inter, spilar undir stjórn Teits Þórðarsonar með indverska liðinu Barasat í nýrri atvinnudeild sem fer af stað á Indlandi síðar í vetur.
Crespo, sem er 36 ára, hefur til skamms tíma spilað með Parma á Ítalíu en hann hefur skorað um 200 mörk í efstu deildum á Ítalíu, Englandi og Argentínu, sem og 35 mörk í 64 leikjum með landsliði Argentínu.
Crespo er einn af fimm gamalkunnum leikmönnum sem skipt hefur verið niður á milli liðanna fimm sem munu skipa deildina. Hinir eru Fabio Cannavaro, sem leikur með Siliguri, Frakkinn Robert Pires, sem leikur með Howrah, Nígeríumaðurinn Jay-Jay Okocha, sem leikur með Durgapur, og Englendingurinn Robbie Fowler, sem leikur með Kolkata.
Þjálfarar liðanna fimm eru síðan Teitur með Barasat, Portúgalinn Fernando Couto hjá Howrah, Englendingurinn Peter Reid hjá Kolkata, Bólivíumaðurinn Marco Etcheverry hjá Siliguri og Nígeríumaðurinn Samson Siasia hjá Durgapur.
Liðin fimm munu leika tvöfalda umferð á sjö vikum og síðan spila fjögur efstu liðin til úrslita. Ekki hefur verið formlega gefið út hvenær keppnin hefst, upphaflega var stefnt á 25. febrúar en því seinkar eitthvað. Þá hefur ekki gengið sem skyldi að fá bestu leikmenn Indlands til að spila með liðunum því indverska knattspyrnusambandið hefur hafnað því að leikmenn úr indversku úrvalsdeildinni fái að taka þátt í leikjum í þessari nýju deild.






