Orri samdi við AGF

Orri Sigurður Ómarsson (16) fagnar sigri með U17 ára landsliði Íslands. stækka

Orri Sigurður Ómarsson (16) fagnar sigri með U17 ára landsliði Íslands. mbl.is

Orri Sigurður Ómarsson, tæplega 17 ára gamall unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu úr HK í Kópavogi, skrifaði í dag undir þriggja ára samning við danska félagið AGF frá Árósum.

Orri leikur bæði með U17 og U19 ára landsliðum Íslands en hann spilaði 20 leiki með HK í 1. deildinni síðasta sumar, enda þótt hann væri þá enn á 3. flokks aldri.

Orri er fimmti Íslendingurinn í röðum AGF. Aron Jóhannsson leikur með aðalliði félagsins og þeir Arnar Aðalgeirsson, Oliver Sigurjónsson og Þórður Jón Jóhannesson með unglingaliðum AGF.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is