Elmar til liðs við Randers
Knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason, sem hefur leikið með IFK Gautaborg í Svíþjóð síðustu árin, gekk í kvöld til liðs við danska liðið Randers. Umboðsmaður hans, Magnús Agnar Magnússon, staðfesti þetta á Twitter rétt áðan.
Randers leikur í dönsku B-deildinni á þessu tímabili en er þar í öðru sæti og líklegt til að vinna sig upp í úrvalsdeildina í vor. Elmar verður fyrsti Íslendingurinn til að leika með félaginu sem hefur fjórum sinnum orðið danskur bikarmeistari, síðast árið 2006. Eftir 14 umferðir af 26 er Esbjerg með 35 stig, Randers 30 og Vejle-Kolding 26 stig en tvö efstu liðin vinna sér sæti í úrvalsdeildinni.
Elmar er 24 ára gamall miðjumaður og hefur verið atvinnumaður frá 17 ára aldri. Hann fór frá KR til Celtic í Skotlandi í árslok 2004, þaðan til Lyn í Noregi árið 2008 og síðan til Gautaborgar sumarið 2009. Hann hefur leikið 60 leiki með Gautaborgarliðinu í sænsku úrvalsdeildinni á tveimur og hálfu tímabili og skorað 4 mörk.
Elmar hefur leikið 10 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og lék 27 leiki með yngri landsliðunum. Talsverð bið verður á að hann spili fyrsta deildaleikinn með Randers því danska B-deildin er í vetrarfríi til 5. apríl.






