Lagt til að bætt verði við einni deild
Á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands um aðra helgi verður tekin fyrir tillaga um að bætt verði við einni deild á Íslandsmóti karla í knattspyrnu.
Það eru Breiðholtsfélögin Leiknir og KB sem leggja tillöguna fram en þar er gert ráð fyrir að þrjár efstu deildirnar verði skipaðar 12 liðum hver eins og verið hefur undanfarin ár. Síðan bætist við 10 liða 3. deild en önnur lið leiki í 4. deild.
Í greinargerð með tillögunni segir: „Ýmsar ástæður eru fyrir tillögunni, þar helst að getumunur á milli liða í núverandi 3. deild er mikill og tvö til fjögur neðstu lið riðilsins standa hinum yfirleitt langt að baki. Einnig er talsvert meiri utandeildar-stimpill á mörgum liðum þarna og því möguleiki að byggja upp deild fyrir minni félög utan af landi sem styrkir þá starf þeirra.
Fall úr 2. deild karla verður ekki jafn mikið áfall og því líklegra að bæjarfélög utan af landi nái að taka þátt í alvöru deildakeppni sem stendur ekki og fellur með einum leik yfir sumarið í úrslitakeppninni. Breiddin í íslenskum fótbolta ætti að aukast og hin nýja 4. deild yrði sennilega mun jafnari riðlakeppni en nú er.“






