Ekki nóg að skora fjögur

Veðrið lék ekkert við Diego Milito og félaga í kvöld. stækka

Veðrið lék ekkert við Diego Milito og félaga í kvöld. Reuters

Það hafa líklega fáir verið svekktari í leikslok heldur en Diego Militio eftir að lið hans Inter gerði 4:4 jafntefli við Palermo í ítölsku A-deildinni í kvöld. Milito gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk Inter en ótrúlegt en satt dugðu þau ekki til.

Milito jafnaði metin í 1:1 og aftur í 2:2 en hann kom Inter svo yfir í 3:2. Á 69. mínútu skoraði hann svo fjórða markið og kom Inter í 4:3. Milito hefur ef til vill haldið að fjórða mark hans myndi duga en á 85. mínútu jafnaði Fabrizio Miccoli metin með sínu þriðja marki fyrir Palermo og gerði að sama skapi minna úr fernu argentíska framherja Inter.

Eins og fjallað hefur verið um í veðurfréttum hefur leiðinlegt veður gengið yfir Ítalíu í dag og þurfti af þeim sökum að fresta þremur leikjum. Eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni voru skilyrði til knattspyrnuiðkunnar í Mílan ekki góð.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is