Grískir knattspyrnumenn í verkfalli

Leikmenn í annarri og þriðju deild grísku knattspyrnunnar eru í verkfalli. Ástæðan er vangoldin laun og skortur á sjúkratryggingum.  Varaformaður gríska knattspyrnusambandsins, Stelios Sfakianakis, segir knattspyrnuna hafa orðið illilega fyrir barðinu á efnahagskreppunni í landinu og að ástandið hafi aldrei verið jafn slæmt og nú.

„Við höfum ekki fengið neinn fjárstuðning eða tekjur síðan í maí. Sjónvarpssamningnum, sem við vorum með við ríkissjónvarpið, hefur verið sagt upp,“ segir Sfakianakis.

Þrátt fyrir að leikjum hafi verið aflýst eru sum liðin engu að síður við æfingar. Þjálfari liðsins Ethnikos Asteras, Petros Dimitriou, segir ófært að menn spili án nokkurra sjúkratrygginga. „Deildin er erfið, fjöldi manna slasast hverja helgi og ég myndi frekar vilja sleppa því að spila en að vera með ótryggða menn.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is