„Ég tek vissa áhættu“

Theódór Elmar Bjarnason, fyrir miðju. stækka

Theódór Elmar Bjarnason, fyrir miðju. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Það var ekki á blaðinu til að byrja með að fara til Randers. Menn frá félaginu settu sig í samband við mig og í framhaldinu fór ég og hitti þá og skoðaði aðstæður og leist miklu betur á þetta en ég bjóst við,“ sagði knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason við Morgunblaðið í gær en hann gekk í fyrrakvöld frá þriggja og hálfs ár samningi við danska B-deildarliðið Randers.

Elmar, eins og hann kýs að kalla sig, hefur spilað með sænska liðinu IFK Gautaborg frá árinu 2009 og þegar Morgunblaðið spjallaði við leikmanninn var hann í æfingaferð með Gautaborgarliðinu á Spáni en hann kveður félaga sína í dag.

„Það er mikill hugur í Randers. Það á að leggja töluverða peninga í félagið og forráðamenn liðsins stefna á að verða í einu af sex efstu sætunum í efstu deild á næsta ári svo ég er bara spenntur fyrir þessu,“ sagði Elmar en Randers er sem stendur í öðru sæti í B-deildinni og á því góða möguleika á að vinna sig upp í úrvalsdeildina.

Sjá lengra viðtal við Elmar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is