Katrín líka til Arna-Björnar
Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er farin til Noregs til að skoða aðstæður hjá úrvalsdeildarliðinu Arna-Björnar í Bergen. Hún er samferða Hólmfríði Magnúsdóttur en eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu hefur norska liðið um nokkurt skeið sóst eftir því að fá Hólmfríði í sínar raðir.
Hólmfríður og Katrín urðu skyndilega atvinnulausar í vikunni þegar ákveðið var að fresta keppni í bandarísku atvinnudeildinni um eitt ár vegna dómsmáls. Þær höfðu báðar samið við Philadelphia Independence en til stóð að Hólmfríður léki þar sitt þriðja tímabil og Katrín var á leið þangað frá bandaríska B-deildarliðinu Orange County Waves í Kaliforníu.
Hólmfríður ætlaði upphaflega að líta á aðstæður hjá norska liðinu með það í huga að fara þangað í lok ágúst, þegar keppni í Bandaríkjunum væri lokið en nú eru þær báðar að leita sér að liði þar sem þær geta byrjað að spila sem fyrst.
Arna-Björnar hafnaði í fjórða sæti í norsku úrvalsdeildinni á síðasta ári og hefur endað þar í 4.-5. sætinu samfleytt frá 2006.






