Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 17:38
| Uppfært
20:00
Kristinn dæmir hörkuleiki á Spáni
Kristinn Jakobsson, milliríkjadómari í knattspyrnu, er kominn til La Manga á Spáni þar sem hann dæmir tvo leiki milli norskra og sænskra liða á æfingamótum á laugardag og sunnudag.
Á laugardaginn dæmir hann viðureign Tromsö frá Noregi og Kalmar frá Svíþjóð, og á sunnudag er það viðureign tveggja af stærstu félögunum á Norðurlöndum, leikur á milli Rosenborg frá Noregi og IFK Gautaborg frá Svíþjóð.
Kristinn dæmir á mótinu í boði norska knattspyrnusambandsins. Dómaranefnd KSÍ valdi síðan þá Birki Sigurðarson og Smára Stefánsson til að fara með honum til Spánar og vera aðstoðardómara á leikjum hans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






