Biðin styttist hjá Eiði Smára
Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti hafið æfingar á fullum krafti með AEK í Aþenu að fjórum til sex viknum liðnum ef áætlanir ganga eftir. Eiður tvífótbrotnaði í leik gegn Olympiacos í grísku deildinni í október og fór í aðgerð fyrir um þremur og hálfum mánuði síðan.
„Eiður er að vinna á fullu með tveimur aðilum í Aþenu, lækni og sjúkraþjálfara ásamt þrekþjálfara. Beinið hefur ekki gróið að fullu og það gæti tekið tvær til þrjár vikur. Þegar beinið hefur náð að gróa þá er gert ráð fyrir því að það líði aðrar tvær til þrjár vikur þar til hann má beita sér af fullum krafti,“ sagði Arnar Grétarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK, þegar Morgunblaðið falaðist eftir fréttum af Eiði.
Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






