Rekstrarhagnaður KSÍ tæp 61 milljón
Knattspyrnusamband Íslands birti í dag ársreikning sambandsins fyrir árið 2011. Þar kemur fram að hækkun var á rekstrartekjum sambandsins frá 2010 sem var þá 723 milljónir. Í fyrra voru rekstrartekjurnar 766 milljónir en ástæðuna má fyrst og fremst rekja til hækkunar sjónvarpstekna og aukins framlags UEFA að því er fram kemur í tilkynningu frá KSÍ.
Hagnaður er á rekstri sambandsins og nemur hann tæpri 61 milljón króna og fer hann fram úr áætlunum sem gerðu ráð fyrir 56 milljónum í hagnað. Þá segir að að teknu tilliti til fjármagnsliða sé hagnaður af starfsemi KSÍ um 92 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum sambandsins er bæði fjárhags- og eignastaða sambandsins traust og lausafjárstaða góð en sambandið er auðugasta sérsamband innan ÍSÍ. Sem dæmi er handbært fé 338 milljónir og eignir nema alls 813 milljónum króna.
Styrkir og framlög til aðildarfélaga KSÍ námu um 83 milljónum króna en voru áætluð 69 milljónir. Ýmis verkefni fengu styrki eða framlög eins og barna- og unglingastarf.
Hagnaður sambandsins 2012 er áætlaður rúmlega 63 milljónir króna sambanborið við 56 milljón króna áætlaðan hagnað 2011.






