Birkir fiskaði víti í sigurleik

Birkir Bjarnason á ferðinni með landsliði Íslands. stækka

Birkir Bjarnason á ferðinni með landsliði Íslands. mbl.is/Eggert

Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður hjá Standard Liege gegn Lierse í belgísku úrvalsdeildinni og átti sinn þátt í 2:0-útisigri. Hann fiskaði vítaspyrnuna sem seinna mark gestanna kom úr.

Birkir kom inn á á 67. mínútu og fiskaði vítið tíu mínútum síðar en áður hafði Michy Batshuayi komið Standard Liege yfir í fyrri hálfleiknum. Rauða spjaldið fór þrívegis á loft í lok leiksins og voru tveir samherjar Birkis reknir af velli.

Standard Liege er sex stigum á eftir toppliði Anderlecht sem á leik til góða þar að auki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is