Real og Barcelona unnu bæði

Sergio Ramos fagnar sigurmarki sínu í kvöld. stækka

Sergio Ramos fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Reuters

Staðan í baráttunni um spænska meistaratitilinn er óbreytt, Real Madrid er áfram með 7 stiga forskot, því bæði liðin unnu leiki sína í 1. deildinni í kvöld.

Real Madrid sótti heim nágranna sína í Getafe og vann þar 1:0 sigur. Varnarmaðurinn Sergio Ramos skoraði markið eftir 18 mínútna leik, eftir sendingu frá Mesut Özil.

Barcelona tók á móti Real Sociedad og vann 2:1. Cristian Tello og Lionel Messi skoruðu fyrir Barcelona áður en Carlos Vela minnkaði muninn fyrir Baskana.

Real Madrid er með 55 stig en Barcelona 48. Valencia er síðan í þriðja sætinu með 36 stig.

Lionel Messi og Cristian Tello skoruðu fyrir Barcelona og fagna hér marki þess síðarnefnda.

Lionel Messi og Cristian Tello skoruðu fyrir Barcelona og fagna hér marki þess síðarnefnda. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is