Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 4.2.2012
| 19:54
| Uppfært
5.2.2012
17:31
Steinþór setti tvö fyrir Sandnes
Steinþór Freyr Þorsteinsson var á skotskónum með norska liðinu Sandnes Ulf þegar liðið burstaði Bryne, 7:1, í æfingaleik í dag. Steinþór skoraði tvö mörk í leiknum en hann opnaði markareikning liðsins og skoraði svo fimmta markið en staðan eftir fyrri hálfleikinn var 6:0.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






