Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 4.2.2012
| 17:41
| Uppfært
5.2.2012
18:29
Þjálfari Hoffenheim: Gylfi vildi ekki spila fyrir okkur
Holger Stanislawski þjálfari Hoffenheim segir að félagið hafi neyðst til að láta þá Gylfa Þór Sigurðsson og Chinedu Obasi fara frá félaginu í janúar. Gylfi var lánaður til Swansea í janúar og skoraði mark og lagði upp annað í sigri á WBA í dag.
„Við vissum að við yrðum að láta Obasi og Gylfa fara því þeir vildu ekki lengur spila fyrir okkur,“ sagði Stanislawski við þýska blaðið Bild.
Ummælin verða að teljast athyglisverð í ljósi þess að Stanislawski virtist frekar vilja hafa Gylfa á varamannabekknum en spilandi inni á vellinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






