Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 4.2.2012
| 14:03
Þrjú íslensk mörk fyrir Halmstad
Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk og Kristinn Steindórsson eitt fyrir sænska B-deildarliðið Halmstad í dag þegar það sigraði C-deildarliðið Lund, 4:2, í æfingaleik.
Staðan var 4:0 í hálfleik eftir tvö glæsimörk Guðjóns og eitt frá Kristni sem auk þess lagði upp eitt marka liðsins. Jónas Guðni Sævarsson gat ekki leikið með Halmstad í dag vegna veikinda.
Guðjón kom til liðs við Halmstad í vetur frá KR og Kristinn frá Breiðabliki en sænska félagið féll úr úrvalsdeildinni í haust. Jónas Guðni hefur leikið með því frá 2009.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






