KA varð Norðurlandsmeistari

Sándor Matus, markvörðurinn reyndi, og samherjar í KA lögðu Þór að velli. stækka

Sándor Matus, markvörðurinn reyndi, og samherjar í KA lögðu Þór að velli. mbl.is/Ómar

KA varð í dag Norðurlandsmeistari karla í knattspyrnu, annað árið í röð, með því að sigra Þór, 3:2, í úrslitaleik Akureyrarliðanna í Hleðslumótinu í Boganum.

KA hefur þar með unnið mótið fimm sinnum í tíu ára sögu þess en Þór fjórum sinnum. Völsungur hefur einu sinni borið sigur úr býtum.

Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sigurmark KA þremur mínútum fyrir leikslok en hann gerði tvö marka KA og Ævar Ingi Jóhannesson eitt. Þeir Janez Vrenko og Sveinn Elías Jónsson skoruðu fyrir Þórsara.

Magni varð í þriðja sæti eftir sigur á Dalvík/Reyni, 6:4, en átta lið léku í mótinu, í tveimur riðlum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is