Búið að vera vandræðalegt

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad. stækka

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad. mbl.is/Kristinn

Afar sérstök staða er komin upp í heimi knattspyrnukvenna í ljósi þess að bandaríska atvinnumannadeildin var óvænt blásin af í síðustu viku. Skyndilega er fjöldinn allur af landsliðskonum, héðan og þaðan úr heiminum, með lausa samninga og í leit að nýjum vinnustað.

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni, hefur ekki farið varhluta af þessu. „Það má eiginlega segja að þetta sé búið að vera vandræðalegt. Ég hef byggt upp góð sambönd í knattspyrnuheiminum á undanförnum árum og fleiri en tuttugu leikmenn hafa haft samband síðustu daga og vilja koma til Kristianstad. Sjálfsagt hafa þeir samband við fleiri félög en þetta er samt sem áður mikill fjöldi. Í gær höfðu fimmtán eða tuttugu leikmenn samband og í dag hafa sex leikmenn bæst við. Ég get því ímyndað mér að heildartalan eigi eftir að fara yfir fjörutíu leikmenn,“ sagði Elísabet þegar Morgunblaðið ræddi við hana um miðjan dag á föstudaginn.

Nánar er rætt við Elísabetu í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is