Guðlaugur Victor skrifaði undir
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður U21 landsliðs Íslands í knattspyrnu, skrifaði í gær undir samning til tveggja ára við New York Red Bulls sem leikur í bandarísku MLS-deildinni. Þetta staðfesti Guðlaugur Victor á Twitter-síðu sinni í gær.
Hann sagðist nú bíða eftir atvinnuleyfi sem ætti að verða klárt á næstu tveimur vikum. Victor verður fyrsti Íslendingurinn til að leika í MLS-deildinni en fyrsti leikur New York þar á komandi leiktíð er gegn Dallas 11. mars. Fram að því mun liðið meðal annars keppa í Demantabikarnum, æfingamóti í Arizona, síðar í þessum mánuði.
Með samningnum sem Guðlaugur Victor gerði er hann meðal annars orðinn samherji Frakkans Thierrys Henrys sem er þessa dagana á láni hjá Arsenal en snýr von bráðar aftur til New York. Hjá félaginu er einnig Mexíkóinn Rafael Márquez sem áður lék með Barcelona líkt og Henry.
Guðlaugur Victor er uppalinn hjá Fylki í Árbænum en var ungur seldur til AGF í Danmörku. Þaðan fór hann til Liverpool og svo til Hibernian í Skotlandi þar sem hann var leystur undan samningi í janúar. sindris@mbl.is






