Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 6.2.2012
| 7:24
| Uppfært
18:46
Kristinn dæmir úrslitaleikinn
Kristinn Jakobsson hefur verið valinn til að dæma úrslitaleikinn á La Manga-mótinu í knattspyrnu á morgun en þá leikur FC Köbenhavn við Spartak Moskva.
Það verður þriðji leikur Kristins á fjórum dögum á Spáni. Hann dæmdi leik FC Köbenhavn og Rosenborg á laugardaginn og viðureign Tromsö og Kalmar í gær. Birkir Sigurðarson og Smári Stefánsson eru aðstoðardómarar með Kristni á mótinu.
Norska knattspyrnusambandið sér um framkvæmd mótsins og bauð Kristni að dæma á mótinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






