Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 7.2.2012
| 10:55
| Uppfært
15:29
Leikið við Dani í Egilshöllinni
Stúlknalandslið Íslands og Danmerkur í knattspyrnu, skipuð leikmönnum 17 ára og yngri, mætast í tveimur vináttulandsleikjum í Egilshöllinni 18. og 20. mars.
Bæði liðin leika í milliriðlum Evrópukeppninnar í vor og leikirnir eru liður í undirbúningi beggja fyrir þá. Íslenska liðið, sem varð í fjórða sæti í síðustu Evrópukeppni í þessum aldursflokki, fer til Belgíu og spilar þar í milliriðli 13.-18. apríl, ásamt Englandi, Sviss og Belgíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






