Malmö á barmi gjaldþrots?

Sara Björk Gunnarsdóttir í búningi Malmö. stækka

Sara Björk Gunnarsdóttir í búningi Malmö. www.ldbmalmo.se

Sænsku meistararnir í knattspyrnu kvenna, LdB Malmö, ramba á barmi gjaldþrots, að því er formaður félagsins, Cecilia Tholse, segir við sænska blaðið Expressen.

Malmö hefur orðið sænskur meistari tvö undanfarin ár, með Þóru B. Helgadóttur í markinu bæði árin og Söru Björk Gunnarsdóttur einnig í stóru hlutverki á síðasta tímabili. Þá er liðið komið í 8-liða úrslitin í Meistaradeild kvenna og spilar þar síðar í vetur.

„Við gætum orðið gjaldþrota. Staða okkar er svo alvarleg að ef við fáum ekki utanaðkomandi hjálp verður erfitt að fjármagna keppnistímabilið 2012. Ef ekkert gerist verðum við gjaldþrota eða verðum að hætta starfsemi í meistaraflokki. Það er ekki hægt að reka neitt án peninga. Það verður að vera hægt að greiða laun,“ segir Tholse við Expressen, og staðfestir að hún muni draga sig í hlé á aðalfundi félagsins 28. febrúar.

„Ég er orðin svo þreytt á þessu,“ segir Tholse.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is