Victor í sigurliði í fyrsta leiknum

Guðlaugur Victor Pálsson í leik með 21-árs landsliðinu. stækka

Guðlaugur Victor Pálsson í leik með 21-árs landsliðinu. mbl.is

Guðlaugur Victor Pálsson lék í kvöld sinn fyrsta leik með bandaríska knattspyrnuliðinu New York Red Bulls þegar það vann FC Dallas, 2:0, í æfingaleik í Mexíkó.

Victor var í byrjunarliðinu og lék á miðjunni ásamt Rafael Márquez, fyrrum leikmanni Barcelona. Skipt var um lið í hálfleik og 22 leikmenn Red Bulls tóku þátt í leiknum.

Keppnistímabilið hjá Red Bulls í MLS-deildinni hefst 11. mars en þá leikur liðið einmitt við FC Dallas á útivelli. Victor er fyrsti Íslendingurinn sem spilar í deildinni en Teitur Þórðarson þjálfaði lið Vancouver Whitecaps í henni framan af síðasta keppnistímabili.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is