„Ég er bara ósköp róleg yfir þessu“

Þóra B. Helgadóttir stækka

Þóra B. Helgadóttir mbl.is/Eggert

„Ég er bara ósköp róleg yfir þessu. Forráðamenn liðsins eiga fund með borgaryfirvöldum í vikunni þar sem óskað verður eftir því að borgin greiði hærri styrki til félagsins. Malmö hefur greitt mun lægri upphæð til félagsins en aðrar borgir og sveitarfélög og ekki bætti úr skák að það þurfti að fjarlægja auglýsingaskilti af vellinum að kröfu sænska knattspyrnusambandsins eftir slys sem varð á vellinum 2010.

Með því varð félagið af töluverðum tekjum. Borgin á völlinn en hún hefur ekki komið á móts við klúbbinn. Því var sent bréf til yfirvalda þar sem óskað var eftir því að bætt yrði úr þessu en blöðin hafa blásið málið upp,“ sagði Þóra B. Helgadóttir, landsliðsmarkvörður og leikmaður sænska meistaraliðsins LdB Malmö, við Morgunblaðið.

Haft var eftir formanni LdB Malmö, Ceciliu Tholse, í sænska blaðinu Expressen að félagið rambaði á barmi gjaldþrots en liðið hefur orðið sænskur meistari tvö undanfarin ár, með Þóru B. Helgadóttur í markinu bæði árin og Söru Björk Gunnarsdóttur einnig í stóru hlutverki á síðasta tímabili. Þá er liðið komið í 8-liða úrslitin í meistaradeild kvenna og spilar þar síðar í vetur.

„Ég hef svo sem ekkert spáð í þessi mál og leikmannahópurinn almennt. Við höfum engar áhyggjur og erum rólegar eftir að hafa rætt við forráðamenn félagsins. Það eina sem við getum gert í stöðunni er að trúa þeim. Þeir segja að blöðin hafi spurt leiðandi spurningar og síðan dregið sínar ályktanir út frá svörunum,“ sagði Þóra.

Nánar er rætt við Þóru í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is