Hallgrímur skoraði fyrir SönderjyskE

Hallgrímur Jónasson stækka

Hallgrímur Jónasson mbl.is/Eggert

Hallgrímur Jónasson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði eitt marka danska úrvalsdeildarliðsins SönderjyskE í dag þegar það sigraði Fredericia, 4:2, í æfingaleik í Tyrklandi.

Hallgrímur lék á miðjunni en Eyjólfur Héðinsson lék í nýrri stöðu sem vinstri bakvörður. Þriðji Íslendingurinn í liðinu, markvörðurinn Arnar Darri Pétursson, kom ekkert  við sögu í leiknum. Aðalmarkvörður liðsins, Nathan Coe, er úr leik næstu mánuði vegna meiðsla en Kenneth Stenild Nielsen, sem var til reynslu hjá ÍBV um síðustu helgi og lék gegn ÍA í Akraneshöllinni á laugardaginn, er nú til reynslu hjá SönderjyskE og varði mark liðsins allan tímann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is